Krákufætur, hrukkur, pokar og blámi í kringum augun gætu heyrt sögunni til með notkun á augnplástrunum okkar. Hvort sem ummerki á augnsvæði stafa af náttúrulegri öldrun, erfðum, þreytu eða svefnstöðu þá styðja plástrarnir þétt við húðina og koma þannig í veg fyrir að hún krumpist eða myndi hrukkur. Á sama tíma styðja plástrarnir við náttúrulega hæfni húðarinnar til að viðhalda raka, örva blóðflæði og auka kollagenframleiðslu sem hægir verulega á eftir því sem aldurinn færist yfir.
Hægt er að nota plástrana við ýmis tilefni og hvenær dags sem er. Þeir eru tilvaldir á morgnana til að fá fyllingu í augnsvæðið, forvörn við ýmsum svefnstellingum eða hvenær sem er yfir daginn þegar þú vilt hressa aðeins upp á þig.
Ef þú vilt fá húðmeðferð án inngrips þá eru plástrarnir frá Wrinkles Schminkles hin fullkomna lausn.
Notkun:
1. Hreinsið og þurrkið húðina vel. Varist að setja einhverskonar húðvörur á tiltekin svæði
2. Fjarlægið plastfilmu plástursins til að afhjúpa límið
3. Leggið plásturinn á rétt svæði. Límhlið snýr að húð
4. Notið plásturinn yfir nótt til að ná sem bestum árangri eða í 1-2 klukkustundir yfir daginn til að fríska upp á þreytta húð
5. Eftir notkun skal fjarlægja plásturinn varlega af og líma á spjaldið sem fylgir pakkningunni
Innihaldsefni:
100% hágæða læknasílikon
Plástrarnir okkar eru gerðir með sömu tæki og læknasílikon sem notað er á skurði eftir aðgerðir.
Galdurinn bakvið læknasílikon er að það gerir húðinni kleift að halda sinni náttúrulegu hæfni og viðhalda raka. Bilið sem myndast á milli plásturs og húðar örvar blóðflæði og eykur kollagenframleiðslu sem stuðlar að heilbrigðari og unglegri húð.