Vatnsdeigsbollur- þær allra bestu!
Heimagerðar vatnsdeigsbollur klikka ekki, þær eru að mati marga þær bestu. Hérna kemur einföld og góð uppskrift fyrir þig til að spreyta þig á fyrir bolludaginn.
45 mín
8
skammtar
1.866 kr.
Setja í körfu
Hráefni
1.866 kr.
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
- 180 g Smjör
- 200 g Hveiti
- 1 stk Egg
- 1 tsk Lyftiduft
- 1/4 tsk salt
- Hitið ofninn í 180°C.
- Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið.
- Hitið saman 360 ML vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni.
- Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins.
- Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni. Aðeins að kólna.
- Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt.
- Setjið bökunarpappír á ofnplötur og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi.
- Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá geta þær fallið.
Leiðbeiningar
Aðferð: