Taco kjúklingasalat
Dásamlegt kjúklingasalat sem er bæði bragðgott og frábært að hafa í kvöldmat!
50 mín
4
skammtar
6.689 kr.
Setja í körfu
Hráefni
6.689 kr.
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
Hráefni
- 400 g Kjúklingabringur
- 200 g Jöklasalat
- 1 paprika, skorin í teninga
- 150 g Kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
- 2 avacado, skorið í teninga
- 1 Rauðlaukur, sneiddur
- 10 g Kóríander
- 85 g Nachos, mulið
- 25 g Jalapeno í sneiðum
Marinering
- 50 ml Ólífuolía
- 2 msk Kóríander, saxað
- 2 Hvítlauksrif, pressuð
- 1 msk Chilíkrydd
- Safi úr 1 límónu
Dressing
- 2 msk Majones
- 4 msk Rjómi
- Safi úr 0.5 límónu
- Salt
- 1/3 af marineringunni
Byrjið á að útbúa marineringuna með því að hræra öllum hráefnunum saman. Takið 1/3 af marineringunni frá fyrir dressinguna og hellið afgangnum saman við kjúklinginn.
Hitið 1-2 msk af olíu á pönnu og brúnið kjúklinginn á báðum hliðum. Látið þá í 200°c heitan ofn í 20-30 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Einnig er gott að grilla bringurnar. Leyfið að standa í smá stund áður en þær eru skornar.
Gerið dressinguna með því að blanda öllum hráefnunum saman og smakka til með salti.
Setjið salat, papriku,tómata, rauðlauk og avacado í salatskál.
Raðið kjúklingnum þar á og setjið ferskt kóríander, nachos og smá af dressingunni yfir.