Sex hráefna pastaréttur sem slær í gegn
Stundum er tíminn lítill og þá er gott að eiga svona uppskriftir í rassvasanum, undirbúningur er einfaldur og fær maturinn alltaf góða dóma hjá mínum kröfuhörðustu.
25 mín
4
skammtar
3.576 kr.
Setja í körfu
Hráefni
3.576 kr.
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
- 250 g Sveppir, sneiddir
- 2 stk Skarlott laukar, smátt saxaðir
- 500 g Spaghetti
- 120 ml Rjómi
- 15 g Steinselja, smátt skorin
- Nýtið safa og fínrifinn börk úr 1/2 sítrónu
- 2 msk Smjör
- 1 dl Rifinn parmesan ostur
- 4 msk Ólífuolía
- 1 stk Salt
- 1 stk Pipar
Látið olíu á pönnu og steikið sveppina í um 5 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir og stökkir á báðum hliðum. Saltið og bætið skarlottlauknum saman við og steikið þar til hann er farinn að mýkjast.
Sjóðið pasta í saltvatni þar til það er farið að mýkjast en ekki orðið alveg mjúkt. Takið pastað með töngum og færið yfir á pönnuna, ásamt 240 ml af pastavatni og rjóma. Látið malla við miðlungshita í nokkrar mínútur þar til sósan er farin að þykkna.
Takið af hitanum og bætið sítrónusafa, sítrónuberki, steinselju og parmesan saman við.
Piprið ríflega og njótið vel.