Rjómalagað hakk og pasta

Ég held að hakk og spaghettí sé með klassískustu heimilisréttum Íslendinga, það er allavega 'go to' rétturinn hjá manninum mínum þegar hann eldar, skiljanlega. Við ætlum ekki að breyta klassíkinni mikið en ég er búin að komast að því að bæta einhverju rjómakenndu í rétti er alltaf viðbót af hinu góða. Ef þið hafið ekki smakkað rjómaostinn með karamellíseruðum lauk þá er tími til kominn, en hann fær mína toppeinkunn og á svo oft vel við. Sætur, mildur og virkilega bragðgóður.
4
skammtar

Uppskrift

Hráefni

  • 0.5 stk Laukur
  • 2 tsk Ítalskt krydd
  • 1 stk Nautakraftur
  • 1 msk Tómatpúrra
  • 4 msk rjómaostur með karamellíseruðum lauk frá MS
  • 200 g Penne pasta
  • 500 g Hakk
  • 400 g Niðurosðnir tómatar
  • 2 tsk Sojasósa

    Leiðbeiningar

    Leiðbeiningar

    Skref 1

    • Setjið olíu á pönnu og skerið laukinn smátt niður og bætið út á pönnuna og steikið í 2-3 mín.

    • Takið utan af hvítlauknum og saxið niður eða notið hvítlaukspressu. Steikið með lauknum í augnablik.

    • Bætið þá hakkinu út á pönnuna og steikið þangað til að hakkið er orðið brúnað.

    Skref 2

    • Bætið þá restinni af hráefnunum saman við og stillið á miðlungshita, kryddið með salt og pipar eftir smekk.

    • Leyfið að eldast meðan pastað er soðið.

    • Setjið vatn í pott og leyfið suðunni að koma upp.

    • Bætið pastanu út í og sjóðið þangað til að það er fulleldað.

    Skref 3

    • Hellið vatninu af pastanu og blandið saman við kjötið og sósuna. Berið fram með t.d. rifnum Goðdala Feyki osti eða parmesan, hvítlauksbrauði og fersku salati.