Kjúklingur í kókos- og kasjúhnetusósu
40 mín
Setja í körfu
Hráefni
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
- 700 g Kjúklingabringur
- 1 Laukur, saxaður
- 3 hvítlauksrif, söxuð
- 1 dl Kókosmjöl
- 1 Rautt chilí, saxað (fræhreinsað ef þið viljið hafa minni sterkt)
- 1 tsk Kanill
- 100 g Kasjúhnetur
- 400 ml Kókosmjólk
- 1 kjúklingakraftur og 1 dl soðið vatn
- 1 límóna
- 3 msk Engifer, fínsaxað
- 4 dl Vatn
- 1 tsk Cumin
- 1 tsk Garam masala
- 50 ml Ólífuolía
- 1 stk Salt
- 1 stk Pipar
Hitið 1 msk af olíu á pönnu og setjið lauk og hvítlauk út á pönnunna og steikið við meðalhita þar til laukurinn er orðinn gullinn.
Setjið kókosmjöl, engifer, chilí, kanil, cumin, garam masala og helminginn af kasjúhnetunum út á pönnuna og steikið í um 1 mínútu.
Setjið þá 4 dl af vatni og leyfið að malla í um 10 mínútur. Setjið þá kókosmjólkina saman við og og blandið vel saman.
Setjið að lokum kjúklingakraftinn saman við sósuna og látið malla við vægan hita í um 5-10 mínútur. Saltið og piprið.
Á meðan sósan mallar, steikið þá kjúklinginn á pönnu með 1 msk af olíu. Setjið safa úr 1 límónu og kjúklinginn út í sósuna og leyfið að malla í um 1 mínútu eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
Bætið því næst hinum helminginum af kasjúhnetunum saman við sósuna. Berið fram með Basmati hrísgrjónum, söxuðu kóríander og límónubátum.