Kjúklingapasta í rjómaostasósu með spínati og stökkum beikonbitum
30 mín
Setja í körfu
Hráefni
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
- 350 g Spaghetti
- 450 g Kjúklingabringur
- 6 stk Beikon
- 6 hvítlauksrif
- 250 g Tómatar
- 120 ml Rjómi
- 35 g Parmesan
- 10 g Basilíka
- 140 lúkur spínat
- 1 msk Ólífuolía
- 1 stk Salt
- 1 stk Pipar
Sjóðið pasta í sjóðandi saltvatni skv. leiðbeiningum á pakkningu. Þegar pastað hefur verið eldað „al dente“ geymið 240 ml af pasta vatni.
Meðan pastað er að sjóða hitið olíu á pönnu við meðalhita. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar og steikið þar til hann er fulleldaður í gegn. Setjið á skurðbretið og skerið í sneiðar.
Steikið því næst beikonið þar til það er orðið stökkt. Takið af pönnunni og þerrið á eldhúsrúllu. Skerið síðan í litla bita.
Hellið helmingjun af beikonfitunni af pönnunni en haldið hinumhlutanum og bætið hvítlauk, tómötum og spínati út á pönnuna og saltið og piprið.
Bætið rjóma, parmesan og 120 ml af pastavatni saman við og látið malla í nokkrar mínútur.
Bætið því næst soðnu pasta saman við og blandið vel saman þannig að rjómasósan hylji pastað.
Bætið því næst kjúklingi og beikonbitum saman við og skreytið með ferskri basilíku.