Grillaður ostakubbur
Grillaður ostakubbur með grísku ívafi er frábær sem forréttur borinn fram með brauði, kexi eða snakki já eða sem meðlæti með grillmatnum eða fylling í bakaðar kartöflur.
30 mín
1
skammtar
1.451 kr.
Setja í körfu
Hráefni
1.451 kr.
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
- 1 stk Ostakubbur
- 1/5 Rauð paprika
- 85 g Blaðlaukur
- 5 stk Grænar ólífur
- 2 msk Ólífuolía
- 1 msk Oregano
- 1 stk Salt
- 1 stk Pipar
Byrjið á að kveikja á grillinu en einnig er hægt að elda ostinn í ofni.
Takið fram álpappír, um30 cm á lengd og setjið ostakubbinn fyrir miðju.
Skerið þá grænmetið smátt niður og blandið saman í skál, setjið grænmetið ofan á ostinn.
Dreifið olíunni yfir ostinn og grænmetið, sáldrið óreganó yfir og toppið með salti og pipar.
Brjótið þá álpappírinn saman, ég tek hann saman í miðjunni og brýt hann niður nokkrum sinnum og tek síðan hliðarnar inn.
Setjið á grillið og leyfið að eldast í 15-20 mín. Osturinn ætti þá að vera orðinn vel bræddur.
Berið strax fram með góðu brauði, kexi, eða snakki.
Hafið ostinn í álpappírnum til að halda hita á honum en hann er snöggur að forma sig aftur.