"Banging" Kjúklingavefjur með avocado og nachos
Börnin mín eru hörðustu gagnrýnendurnir þegar kemur að eldamennsku minni. Þessar vefjur fengu hinsvegar fullt hús stiga og eins og sonur minn sagðir þá eru þær "banging"!
25 mín
4
skammtar
5.422 kr.
Setja í körfu
Hráefni
5.422 kr.
Setja í körfu
Uppskrift
Hráefni
Burrito
- 1 pakki Tortillur
- 1 stk Iceberg
- 200 g Cheddar ostur
- 3-4 kjúklingabringur
- 1 pakki Tortilla ostaflögur
- 1 pakki Avocado
- 2 stk Tómatar
Sósa
- 180 g Sýrður rjómi
- 180 g Salsa sósa
- 2 tsk Taco krydd
- Blandið hráefnum fyrir sósuna saman í skál.
- Setjið 1 msk af sósunni á tortillu og raðið svo káli, kjúklingi, avacado, tómötum, flögum og cheddar ost. Toppið með 1 msk af sósunni og rúllið vefjuna upp.
- Endurtakið með hinar tortillurnar og njótið vel.