Spilið sem þú sérð tvöfalt!
- Tvenna er spil sem samanstendur af yfir 50 táknum og 55 spjöldum, hvert spjald er myndskreytt með 8 táknum og alltaf einungis eitt tákn – já aðeins eitt – sem er eins á hverjum tveimur spjöldum!
- Markmið spilsins er að vera fyrst/ur að finna táknið sem er eins á tveimur hringlaga spjöldum. Táknin geta verið misstór og staðsett á ólíkum stöðum á spjöldunum svo þetta getur reynst snúið!
- Hvert spjald er einstakt og hefur aðeins eitt tákn sem er sameiginlegt með öllum öðrum spjöldum í stokknum. Með stokknum er hægt að spila fimm útgáfur af spilinu, þ.e. hröðum örspilum, þar sem allir leikmenn spila samtímis.
- Hægt er að spila örspilin í fyrirfram ákveðinni röð, á handahófskenndan hátt, eða sama spilið er spilað aftur og aftur. Aðalatriðið er að allir skemmti sér!
- Hægt er að spila nokkrar útgáfur af spilinu en hraði, eftirtektarsemi, snerpa er aðalatriðið í þeim öllum
- Tvenna kemur í fyrirferðalitlu boxi út tini og því tilvalið ferðaspil sem lítið mál að taka það með sér hvert sem er! Vitaskuld fylgja íslenskar leikreglur stokknum.
- Ef þú sérð tvöfalt skaltu ei hika heldur bregðast skjótt við!!
Innihald:
- 55 spil
- Íslenskar leikreglur
- Selst í handhægri tinöskju
- Aldur: 6+
- Fyrir 2–8 leikmenn