
Baron de Ley Gran Reserva 750ml
3.898 kr.
Barón de Ley Gran Reserva er rauðvín frá Rioja DOCa á Spáni, gert úr Tempranillo og Graciano þrúgum, 14% að styrkleika. Vínið er látið þroskast í 24 mánuði í frönskum og amerískum eikartunnum og síðan í 36 mánuði á flösku, sem gefur mjúkt og fyllt vín með silkimjúkum tannínum, keim af þroskuðum og þurrkuðum ávöxtum, ristaðri eik og kryddi. Passar vel með steiktu kjöti, villibráð, lambakjöti og þroskuðum ostum eins og Manchego.
Innihaldsefni: Vínber, súlfít.
