Neutrogena Norwegian Formula Cica Repair fótamaski
Cica Repair fóta maskinn er einstaklega nærandi meðferð fyrir fætur.
Á aðeins 10 mínútum verða fæturnir vel nærðir og mjúkir, og varnir húðarinnar styrkjast.
Maskinn léttir samstundis á þurri húð, og virkar nánast eins og plástur sem gerir við þurra og sprungna húð.
Notkunarleiðbeiningar:
- Þrífið fæturna vel og vandlega
- Klæðið fæturna í sokkana og lokið sokkunum með festingunni
- Leyfið maskanum að vera á fótunum í 10 mínútur og fjarlægið svo sokkana
- Nuddið restinni af maskanum inn í húðina, ekki þarf að þrífa hann af
Cica er vel þekkt asísk jurt sem hefur verið mikið notuð sem innihaldsefni í kóreskum húðvörum. Cica hefur einstaka heilandi eiginleika fyrir húðina, og er einnig bólgueyðandi og bakteríudrepandi sem gerir það sérstaklega gott fyrir viðkvæma húð og húð sem þarf að þola mikið af áreiti. Cica hefur reynst vel við exemi, örum, psoriasis og fleiri húðvandamálum.
Innihaldsefni: Aqua, Glycerin, Distearyldimonium Chloride, Petrolatum, Isopropyl Palmitate, Cetyl Alcohol, Dimethicone, Avena Sativa Kernel Flour, Avena Sativa Kernel Oil, Avena Sativa Kernel Extract, Butyrospermum Parkii Butter, Steareth-20, Myristyl Alcohol, Stearyl Alcohol, Sodium Chloride, Benzyl Alcohol, Potassium Sorbate