Neutrogena Hydro Boost Gel andlitskrem 50 ml
Létt gelkrem sem hentar vel fyrir þurra og extra þurra húð
Gel Cream er létt gelkrem sem hentar vel fyrir þurra og extra þurra húð og gefur henni kröftugan raka með náttúrulega rakaefninu hýalúrónsýru
Hýalúrónsýra virkar eins og svampur og getur bundið þúsundfalda þyngd sína í vatni djúpt í húðinni
Formúlan býr svo til einskonar vatnstank undri húðlaginu sem sleppir rakanum hægt og rólega, sem tryggir það að húðin fái nægan raka allann daginn.
Formúlan inniheldur nú einnig Trehalose, sem er náttúrulegt plöntu efni sem virkar sem raka-og andoxunarefni sem hefur verndandi áhrif á húðina og náttúrulegar rakavarnir húðarinnar. Trehalose getur einnig stuðlað að aukinni kollagen myndun í húðinni þar sem það hefur verndandi áhrif á frumur sem framleiða kollagen.
Ásamt glycerin og ólívuextract styrkir það rakavarnir húðarinnar svo að húðin heldur rakanum mun lengur og helst rakafyllt allann daginn.
Gelkremið er olíulaust
Notkunarleiðbeiningar: Berið daglega á hreina húð og háls. Nuddið kreminu vel inn með léttum hringlaga hreyfingum.
Innihaldsefni: Aqua, Dimethicone, Glycerin, Cetearyl Olivate, Trehalose, Sodium Hyaluronate, Ethylhexylglycerin, Dimethicone Crosspolymer, Dimethiconol, Polyacrylamide, C13-14 Isoparaffin, Synthetic Beeswax, Sorbitan Olivate, Laureth-7, Carbomer, Sodium Hydroxide, Chlorphenesin, Phenoxyethanol.
Hydro Boost línan frá Neutrogena er einstaklega rakagefandi lína sem bætir rakastig húðarinnar og hjálpar henni að viðhalda því
Allar vörur í Hydro Boost línunni innihalda náttúurlega rakaefnið hýalúrónsýru
Innblásturinn af línunni kemur úr kóreskum húðvörum, en þær hafa lengi verið þekktar fyrir að vera fyrsta flokks
Andlitskrem línunnar eru nú með nýrri og endurbættri formúlu sem inniheldur einnig plöntuefnið Trehalose