Neutrogena C+S Mousse andlitshreinsir
Mousse cleanser er mildur froðuhreinsir.
Hann fjarlægir óhreinindi, olíur, leifar af farða og önnur óhreinindi án þess að strípa húðina af sínum náttúrulegu olíum.
Hann skilur húðina eftir tandurhreina, mjúka og nærða og hefur róandi eiginleika.
Hreinsirinn hentar frábærlega til að hreinsa húðina eftir farðahreinsun, sem seinna skrefið í tveggja þrepa húðhreinsun.
Clear&Soothe línan er gerð sérstaklega fyrir viðkvæma húð sem þarf djúpa hreinsun.
Allar vörurnar í línunni innihalda túrmerik sem er náttúrulega bólgueyðandi og bakteríudrepandi. Það inniheldur mikið magn af andoxunarefnum og róar húð sem er bólgin, pirruð og þrútin. Það gefur húðinni aukinn ljóma og hjálpar húðinni að viðhalda heilbrigðu rakastigi.
Innihaldsefni: Aqua, Cocamidopropyl Betaine, Glycerin, Decyl Glucoside, Sodium Hydrolyzed Potato Starch Dodecenylsuccinate, Citric Acid, Sodium Chloride, Sodium Hydroxide, Curcuma Longa Extract, Linoleamidopropyl PG-dimonium Chloride Phosphate, Potassium Acrylates Copolymer, Propylene Glycol, Disodium Tetrapropenyl Succinate, Sodium Lauryl Sulfate, Sodium C14-16 Olefin Sulfonate, Disodium EDTA, Tocopheryl Acetate, Phenoxyethanol, Sodium Benzoate, Parfum, CI 15985 [PR-0000932].