Natures Aid Krill Oil 60 töflur 100% Pure Omega-3
Omega 3 í sinni hreinustu og öflugustu mynd, sótt í Suðurskautshafið sem er hreinasta hafsvæði veraldar.
Það sem gerir krillolíuna sérstaka er að líkaminn á mjög auðvelt með að nýta sér fitukeðjurnar í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir inntöku. Krill blandast við vatn og þess vegna er talið að maður sé ekki að ropa upp bragðinu af því eftir á. Aðrar fiskiolíur blandast ekki við vatn.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að Omega 3 sé gott fyrir æðakerfið, heilann, húðina og ónæmiskerfið.
Það sem gerir krill olíuna sérstaka er að líkaminn á afar auðvelt með að nýta sér fitukeðjurnar í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir inntöku. Krill blandast við vatn og er því talið að ekki sé ropað upp bragði eftir inntöku. Aðrar sambærilegar fiskolíur blandast ekki við vatn.
Hvað er krill? Krill eða ljósáta er lítið krabbadýr sem lifir í efstu lögum sjávar. Suðurhafsljósátan hefur mikið vægi í vistkerfi Suðurhafana og fjöldi sjávardýra byggir tilveru sína beint og óbeint á þessu eina krabbadýri. Krill er neðst í fæðukeðjunni sem þýðir að krill olían er sú hreinasta sem finnst, en mengun eins og þungmálmar er að verða mikið vandamál í mörgum fisktegundum í dag. Suðurhafskrillið inniheldur náttúrulegt andoxunarefni sem heitir Astaxanthin og er það talið eitt það öflugasta sem völ er á. Vegna mikillar andoxunar frá Astaxanthin (rauði liturinn frá krabbadýrinu) hefur krill olían mikinn stöðugleika og er því með mikla vörn gegn þránun.
Krill olían er rík af EPA og DHA fitusýrum og nýtanleiki og frásogun er mun meiri sökum þess að olían inniheldur að auki fosfólípíð.
Notkunarleiðbeiningar: 2 hylki á dag