Natures Aid Ginger, Turmeric & Bromelain 60 töflur
Engifer, túrmerik og brómelín er einstök formúla sem byggð er á árþúsunda gömlum austurlenskum hefðum. Þessi formúla sameinar þrjú náttúruleg innihaldsefni í einni töflu, engifer, túrmerik og brómelín.
Margir þekkja engiferrótina úr austurlenskri matargerð og hefur túrmerik rótin sem er náskyld engifer verið mikið notuð í kínverskum og indverskum hefðum. Bromelain (brómelín) er samheiti yfir ensím sem sem finnast í ananassafa og ananasplöntunni sjálfri. Styrkleiki þessara ensíma er að þau geta meðal annars brotið niður prótein og gelatín.
Notkunarleiðbeiningar: 1-3 töflur á dag með mat - aðeins fyrir 6 ára og eldri.
Innihald í 1 hylki: 500 mg engifersrótar extract, 500 mg túrmerik rótar extract, 100 mg bromelain
Önnur innihaldsefni: örkristallaður sellulósi, tvíkalsíum fosfat, maltódextrín, sódíum karboxýmetýlsellulósi, kekkjavarnarefni (kísildíoxíð, magnesíumsterat úr jurtum).
Inniheldur ekki: erfðabreytt efni, korn, mjólkurvörur, laktósa, glútein, hveiti, ger, hnetur, salt, soja, sterkju, sykur né gervi bragð- og litarefni.
Ekki ráðlagt fyrir ófrískar konur, eða með barn á brjósti, þau sem eru á blóðþynnandi lyfjum eða hafa fengið gallsteina.