Moustidose flugnafælan er ætluð til útvortis notkunar og berist eingöngu á bera húð. Forðast skal að efnið berist í augu eða munn.
Ef efnið berst í augu þá skolið með miklu vatni. Spreyið ekki beint í andlit, spreyið í lófa og berið á andlit.
Passa skal að bera efnið ekki á hendur ungbarna þar sem þau eiga það til að setja hendur upp í sig.
Aldrei skal nota Moustidose á svæði sem eru með skurði, sár eða á húð sem orðið hefur fyrir ertingu.
Spreyið í opnu og vel loftuðu rými og varist að anda að ykkur innihaldinu. Passið að spreyja ekki nærri matvælum. Mælt er með því að einstaklingar sem nota efnið í lengri tíma fari reglulega í sturtu til að byggja ekki upp mörg lög af efninu á húðinni.
Moustidose ICARIDINE er flugnafæla sem inniheldur 25% ICARIDINE og virkar mjög vel gegn moskító, mýflugum og skógarmýtlum (Ticks). Efnið er milt fyrir húðina, veldur ekki ertingu og hentar því vel fyrir alla fjölskylduna. ICARIDINE má nota á börn frá sex mánaða aldri. Veitir 12 klukkustunda vörn. Efnið er ætlað til notkunar á öllum svæðum.
Ef vart verður við ofnæmisviðbrögð þá skal hætta notkun efnisins. Ef nauðsynlegt er að fara til læknis þá skal hafa flöskuna með sér til að sýna lækninum innihaldsefnin.