Spilið gengur út á að lýsa spjöldunum hljóði og leik.
ATH þú mátt bara nota höfuðið til að leika og mynda hljóð án þess að nota orð.
Spilið inniheldur 74 skemmtileg spjöld sem krakkarnir eiga að giska á.
4-8 leikmenn (tveir í liði)
Settu spilin á borðið í stokk.
Liðin skiptast á að gera. Annar liðsfélaginn dregur spil, hinn giskar.
Hvert lið fær mínútu til að ná eins mörgum spjöldum og þau geta.
Rétt svar gefur eitt stig. Mínus eitt stig, ef þú segir pass.
Þegar stokkurinn klárast eru stigin talin og liðið með flest stig vinnur leikinn
ÞAÐ MÁ NOTA HLJÓÐ
ÞAÐ MÁ LEIKA MEÐ HÖFÐINU
ÞAÐ MÁ HUMMA
- notaðu síma eða klukku til að taka tímann -
p.s. krakkar! þið megið auðvitað búa til ykkar eigin reglur líka