Krakkalýsi 240 ml
Krakkalýsi er bragðlítið og inniheldur A-, D- og E-vítamín, en er einnig ríkt af omega-3 fitusýrum. Ein af þeim er DHA fitusýran sem líkaminn nýtir til að byggja upp heilann og taugakerfið. A- og D-vítamín eru nauðsynleg krökkum til að tryggja eðlilegan vöxt tanna og beina.
Krakkalýsi er afrakstur þróunarstarfs Lýsis sem unnið var í samráði við foreldra og börn. Lýsið er unnið á sérstakan hátt þannig að magn A- og D-vítamína verður hæfilegt fyrir börn.
Í ráðlögðum dagskammti af krakkalýsi er einnig meira af omega-3, þar á meðal DHA, en í venjulegu lýsi.
Notkunarleiðbeiningar: Börn 5 ára og yngri: 1 teskeið (5 ml) á dag - 6 ára og eldri: 2 teskeiðar (10 ml) á dag
Innihald í 1 dagskammti
- 1 teskeið: 138 µg A-vítamín, 9,2 µg D-vítamín, 4,6 mg E-vítamín
- 2 teskeiðar: 275 µg A-vítamín, 18,4 µg D-vítamín, 9,2 mg E-vítamín
Innihaldsefni: Þorskalýsi, túnfisklýsi, E-vítamín (d-alfa-tókóferýl asetate), A-vítamín (retínól palmítat), D-vítamín (kólekalsiferól).
Ráðlagður dagskammtur
A-vítamín:
- Börn 6-11 mán: 300 µ
- Börn 12-23 mán: 300 µ
- Börn 2-5 ára: 350 µg
- Börn 6-9 ára: 400 µg
- Börn (kk og kvk) 10-13 ára: 600 µg
- Karlar >13 ára: 900 µg
- Konur >13 ára: 700 µg
- Á meðgöngu: 800 µg
- Með barn á brjósti: 1100 µg
D-vítamín:
- 6 mánaða – 9 ára: 10 µg
- KVK og KK 10-69 ára: 15 µg
- KVK og KK 70 ára og eldri: 20 µg
- Á meðgöngu: 15 µg
- Með barn á brjósti: 15 µg
E-vítamín:
- 6-11 mán: 3 mg
- 12-23 mán: 4 mg
- 2-5 ára: 5 mg
- 6-9 ára: 6 mg
- Konur
- 10-13 ára: 7 mg
- 14 ára og eldri: 8 mg
- Á meðgöngu: 10 mg
- Með barn á brjósti: 11 mg
- Karlar
- 10-13 ára: 8 mg
- 14 og eldri: 10 mg