Íslensku jólasveinarnir 500 bita púsl - Jólasveinabandið
Íslensku jólasveinarnir 500 bita púsl – Jólasveinabandið
Virkilega fallegt og hátíðlegt 500 bita púsl með myndum af íslensku jólasveinunum.
Íslenska þjóðin er svo heppin að eiga 13 jólasveina. Samkvæmt íslenskri þjóðtrú eru um að ræða syni tröllanna Grýlu og Leppalúða en þessi stóra fjölskylda býr ásamt jólakettinum í stórum helli. 13 dögum fyrir jól fer fyrsti jólasveinninn til byggða og síðan einn á dag. Áður fyrr voru jólasveinarnir hrekkjóttir og þjófóttir en í dag lauma þeir helst litlum gjöfum í skóinn hjá stilltum börnum þá nótt sem þeir koma til byggða.
Íslensku jólasveinarnir eru Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottasleikir, Askasleikir, Hurðaskellir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur og Kertasníkir.
Listamaðurinn Brian Pilkington er þjóðkunnur fyrir teikningar sínar og snjallar bókaskreytingar. Brian hefur skrifað og myndskreytt fjölmargar barnabækur og á síðari árum hafa bækur hans um íslenska þjóðtrú og tröll vakið verðskuldaða athygli innan og utan landsteinana.
- Myndefni : Jól , Skopmyndir
- Fjöldi púsla : 500