Nip+Fab Illuminate SPF30 rakakrem
5.199 kr.
Rakakrem með SPF30 sem veitir húðinni fallegan ljóma, hámarks raka og vörn. Dagkrem sem verndar húðina frá skaðlegum umhverfisáhrifum, UVA og UVB geislum, blágeislum sem og loftmengun. Áferðin er létt og glær á húðinni en veitir samt hámarks vörn. Lótusblóm gefur húðinni heilbrigðan ljóma og koparpigment birta og jafna húðlit. Formúlan veitir djúpan raka, fallegan ljóma og hentar einstaklega vel undir farða.