ÍGF maíspokar, 10-12 ltr
Maíspokar brotna niður á örfáum vikum án þess að valda skaða í náttúrunni og henta því vel undir lífrænan úrgang
20 pokar á hverri rúllu.
Maíspokinn er 18 míkron að þykkt. Til að ná fram lengri geymslutíma fyrir notkun er best að geyma pokann fjarri ljósi og hita. Pokinn er í fullu gæðum fyrstu 6 mánuðina.
Meira um maíspokana:
Pokarnir innihalda ekki erfðabreyttan maís. Fyrirtækið sem framleiðir hrávöruna, MATER-BI sem notað er í maísburðarpokana notast ekki við erfðabreyttan maís. Kornið sem notað er til framleiðslunnar er ræktað í Evrópu í samræmi við þá staðla sem þar gilda og er ekki erfðabreytt. Þá er notuð matarolía við framleiðsluna sem einnig er unnin úr óerfðabreyttu hráefni.
Samkvæmt skýrslu frá framleiðanda þá þarf um 0,03 hektara lands af maís og 0,14 hektara lands af jurtaolíu til að framleiða 1 tonn af maíspokum sem gera ca 100.000 innkaupapoka. Til að setja þetta í samhengi þá getur þurft um 4 hektara lands til að framleiða 1 tonn af nautakjöti. Það er því ekki mikið landsvæði sem þarf til framleiðslunnar. Maís er ekki eina jurtin sem notuð er í framleiðsluna því einnig er hægt að nota mjölmiklar kartöflur, þistil ofl. Þessi atriði skipta máli í sambandi við það hvort framleiðslan er í samkeppni við framleiðslu á mat handa hungruðum heimi en svo er ekki í þessu tilfelli. Á það má svo benda að skortur á landssvæðum til ræktunar er minna vandamál en sú staðreynd að 30% af framleiddum matvælum er hent árlega.