Hákarlalýsisperlur 500 mg 120 stk
Hákarlalýsi er talið sérstaklega nytsamlegt ónæmiskerfinu og er ríkt af alkoxyglýseróli sem örvað getur framleiðslu hvítra blóðkorna. Alkoxyglýseról fyrirfinnst í heilbrigðum beinmerg og móðurmjólk en þó ekki í því magni sem er að finna í hákarlalýsi.
Íslendingar hafa um árabil notið styrkjandi eiginleika hákarlalýsis og það er til dæmiss mikilvægt að huga að ónæmiskerfinu til að koma í veg fyrir að umgangspestir nái að taka sér bólfestu í líkama okkar.
Hákarlalýsi inniheldur ekki A- og D- vítamín og því geta þeir sem taka lýsi notað hákarlalýsi á sama tíma.
Notkunarleiðbeiningar: 1-2 perlur á dag
Innihald: Hákarlalýsi, gelatín (nautgripa), rakaefni (glýseról), vatn. Hver perla inniheldur 500 mg af hákarlalýsi, þar af eru ca 100 mg alkoxyglýseról.