Ethique Nectar - Varasalvi Ilmefnalaus
1.999 kr.
Næstum 200 milljón plastumbúðum utan af varasölvum er hent á hverju ári og meirihluti þeirra umbúða endar ekki í endurvinnslu! Þessi varasalvi gerir ekki bara gott fyrir varirnar þínar, heldur líka fólk og jörðina. Gott fyrir varirnar – Nectar er lyktarlausi varasalvinn okkar. Varasalvinn nærir, mýkir og verndar varirnar þínar með jójóba-, laxer- og morgunfrúarolíu ásamt fullt af kakósmjöri. Við prófun á varasölvunum okkar fundu 94% strax mun á vörunum sínum! Nectar er svo góður að þú munt aldrei gleyma hvar þú skildir hann eftir. Gott fyrir jörðina – salvinn kemur í 100% plastlausum umbúðum sem má setja í moltugerð. Gott fyrir fólk – hjá Ethique er lagt mikið kapp á að afla innihaldsefna sem framleidd eru með sjáflbærum hætti frá stöðum eins og Rwanda og Samoa. Með því að versla beint við framleiðendur/bændur er hægt að auka gagnsæi sem tryggir öruggari innkomu fyrir þau og betri vinnuskilyrði.