Better You DLux 1000 D-vítamín munnúði 15 ml
D Lux 1000 (og D Lux 3000) eru fyrstu D- vítamínin á markaðnum sem eru í munnúðaformi. Með því að spreyja úðanum undir tungu eða út í kinn, er upptakan tryggð þar sem það seytlar gegnum slímhúðina og beint út í blóðrásina.
D- vítamínskortur er afar algengur í vestrænum löndum en hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma og skiptir þetta vítamín t.a.m. sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi og sterkar tennur og bein. Rannsóknir gefa þó til kynna að það gegni mun víðtækara hlutverki en talið var og það sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og fyrirbyggja ýmsa kvilla. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi kvilla sem tengjast D- vítamínskorti.
Í gegnum þróunarsöguna hefur sólin verið meginuppspretta D- vítamíns en í dag þegar fólk notar meiri sólarvörn, forðast sólina eða býr þar sem ekki er næg sól er skortur á D- vítamíni mjög algengur. Íslendingar fara ekki varhluta af sólarleysinu og því er það sérlega mikilvægt að við pössum upp á að taka inn D- vítamín í bætiefnaformi.
Notkun: 1 úði á dag - úðið inn í kinn
Magn: 15 ml - um þriggja mánaða skammtur