Digest Gold meltingarensím 45 hylki
Digest Gold eru öflugasta blanda meltingarensíma sem völ er á.
Auk ensíma, innheldur hvert hylki ATPro (ATP er orkugjafi líkamans, Magnesíum Citrate, CoensimeQ10, Phytase) sem eykur orku, auðveldar meltingu og ýtir undir eðliegar iðra(þarma)hreyfingar.
Hver kannast ekki við að verða þreyttur eftir þunga máltíð? Sumir fá líka óþægindi, uppþembu og vindverki, en þetta tengist að öllum líkindum skorti á meltingarensímum.
Líkaminn framleiðir sjálfur meltingarensím sem brjóta niður fæðuna en margt getur orðið til þess að hann framleiði ekki nóg.
Afleiðingarnar vegna skorts á meltingarensímum geta verið afar víðtækar og hugsanlega finnum við fyrir öðrum einkennum en ónotum í meltingu. Einkenni skorts geta verið: brjóstsviði, vindverkir, uppþemba, kviðverkir & ógleði, bólur, nefrennsli, krampar í þörmum, ófullnægt hungur, exem, höfuðverkur, skapsveiflur, liðverkir, húðkláði, húðroði og svefnleysi.
Enzymedica hefur einkaleyfi á aðferð sem kallast Therablend en þá er blandað mörgun stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pH- gildum og ná þau þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Ensím sem unnin eru með þessari aðferð hafa mælst á bilinu 5-20 sinnum öflugri og vinna meira en sex sinnum hraðar en önnur leiðandi meltingarensím.
Notkunarleiðbeiningar: 1 hylki fyrir hverja máltíð eða eftir þörfum.
100% vegan hylki án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna.