Æðislegt kartöflusalat, slær alltaf í gegn!
Hráefni
- 300 g litlar kartöflur
- 200 g spínat
- 80 g brætt smjör
- 4 hvítlauksgeirar
- 1/2 tsk salt
- 2 stilkar vorlaukur eða 2 msk saxaðar rauðlaukur.
- 1 msk ferskt saxað rósmarín
- 1/2 krukka fetaostur
Aðferð
- Skolið kartöflurnar og skerið í tvennt.
- Sjóðið þær í 10 mínútur.
- Hellið vatninu af kartöflunum og látið þær til hliðar.
- Pressið hvítlaukin út í 80 g af bræddu smjöri.
- Setjið kartöflurnar í eldfast mót og hellið olíunni yfir og hrærið vel.
- Saltið og kryddið með rósmarín. Bætið lauknum við og hrærið.
- Bakið á 200 g undir og yfir hita í 30 mín. Hrærið reglulega.
- Setjið svo fetaost og helminginn af spínatinu saman við og bakið í aðrar 10 mínútur.
- Bætið restinni af spínatinu við og berið fram.