Þessa verða allir sem elska Oreo að prófa, ein vinsælasta uppskriftin í dag!
Hráefni
- 350 gr oreo kex
- 200 gr Philadelphia light
- 100 gr mjúkt smjör
- 260 gr flórsykur
- 50 gr Philadelphia Light
- 1 tsk vanilludropar
- 200 gr hreint Milka súkkulaði bráðið
Aðferð
Kökubotninn
- Setjið allt kexið í blandara og malið í fínt duft
- Færið næst yfir í hrærivélarskál og bætið 200 gr af rjómaostinum út í
- Hærið vel saman þar til er orðið að klístruðu deigi og allt vel blandað saman
- Setjið deigið á disk með filmuplasti yfir og kælið í eins og 30 mín, má vera lengur, og gerið kremið til á meðan
Kremið
- Byrjið á að þeyta mjúkt smjörið í smá stund
- Bætið næst flórsykri, vanillu og rjómaosti út í og aukið hraðann
- Þeytið þar til kremið er orðið vel ljóst og loftkennt gæti tekið alveg 5-7 mínútur og látið standa á borði þar til það er sett á kökuna
Samsetningin
- Takið deigið úr kælir og setjið það ofan á smjörpappa
- Leggjið aðra örk af smjörpappír yfir og fletjið það út á milli pappanna með kökukefli í eins og 1 cm þykkan ferning
- Takið efri pappann af og smyrjið næst kreminu yfir ferninginn og skiljið eftir án krems eins og cm frá köntunum
- Rúllið svo kökunni upp með því að nota pappírinn sem er undir, þið togið í endann næst ykkur og rúllið upp með því að halda alltaf í endann meðan þið rúllið
- Setjið næst upprúllaða kökuna með kreminu á inn í fyrstir og á meðan er gott að bræða súkkulaðið.
- Bræðið 200 gr Milka súkkulaði yfir vatnsbaði og hellið því svo yfir kökuna og smyrjið vel yfir hliðarnar líka
- Leyfið súkkulaðinu ögn að storkna á kökunni upp á borði eða við opinn glugga
- Þegar súkkulaðið hefur storknað aðeins, þá er gott að setja kökuna í frystir í lágmark 30-60 mínútur áður en hún er borin fram
- Geymið kökuna ávallt í frystir og berið fram frosna, þannig er hún laaaangbest !