Mexikó lasagna er hættulega góður heimilismatur sem er bæði einfaldur og einstaklega bragðgóður.
Innihald
- 4-5 kjúklingabringur
- ½ laukur saxaður
- 1 stór rauð paprika
- 1 bréf taco krydd
- 1 stór krukka af salsa sósu ( þið veljið hvort hún eigi að vera mild eða sterk)
- 150 ml matreiðslurjómi
- 100 gr rjómaostur
- Tortillur (1 pakki af minni gerðinni)
- Mozzarella ostur rifinn
- Smá kóríander til að setja yfir í lokin ( má sleppa)
Aðferð
- Byrjið á að hita ofninn á 180 gráður.
- Skerið lauk og papriku fínt og kjúklingabringurnar í litla bita.
- Steikið laukinn og paprikuna á pönnu upp úr olíu þar til það fer aðeins að mýkjast.
- Bætið svo kjúklingnum á pönnuna og steikið áfram.
- Hellið kryddinu yfir og steikið í smá stund til viðbótar.
- Hellið salsasósunni og matreiðslurjóma yfir og látið suðuna koma upp.
- Hrærið rjómaosti saman við sé hann notaður.
- Látið malla á pönnunni saman í nokkrar mínútur.
- Setjið tortillaköku í botn á eldföstu formi, það fer aðeins eftir hvernig form þið notið en stundum klippi ég kökurnar til svo að þær passi betur í formið.
- Setjið kjúklingablönduna yfir og síðan til skiptis tortillakökur og kjúklingablönduna, passið að hafa nóg af vökva/safa af pönnunni með til að mýkja kökurnar.
- Stráið mozzarella osti yfir og setjið svo formið inn í ofn þar til osturinn er bráðnaður og kominn með fallegan lit.