Vöfflur með Nutella súkkulaði, þeyttum rjóma og bönunum.
Þetta hljómar sem góð uppskrift af einhverju sætu með helgarkaffinu, það þarf ekki að vera flókið að töfra fram vöfflur. Notum bara tilbúið deig til að spara okkur sporin og njótum þess.
Hráefni
- 1 pakki vöfflu mix
- 1 stk rjómi
- 1 dós Nutella súkkulaði
- 2 bananar
- sulta
Aðferð
- Byrjið á blanda saman vöfflu mixið.
- Bakið vöfflurnar, þeytið rjóma og berið fram með því sem að hugurinn girnist. Á mínu heimili er ansi vinsælt að setja Nutella, rjóma og banana.
Verði ykkur að góðu !