Fyrir fjóra
Hérna kemur uppskrift að góðum kjúklingarétti. Lítil fyrirhöfn fylgir þessum rétti og hann þykir alltaf jafn góður. Léttur réttur með smá mexíkósku ívafi.
Innihald
- 4-5 kjúklingabringur
- 1 dós ostasósa úr krukku1
- 1 dós salsasósa úr krukku
- 170 g Doritos snakk (veljið ykkar uppáhaldsbragðtegund)
- 100 g rifinn ostur
- 1 dós sýrður rjómi
Aðferð
- Byrjið á að skera niður kjúklingabringurnar í bita og steikið upp úr olíu á pönnu og kryddið.
- Blandið mexíkóskri ostasósu og salsasósu saman í potti við vægann hita.
- Leggið helminginn af sósublöndunni í botninn á eldföstu formi, setjið kjúklingabitana ofan á og brjótið niður snakk yfir, endurtakið tvisvar sinnum.
- Stráið rifnum osti yfir ásamt því að setja nokkrar klípur af sýrðum rjóma aðeins yfir réttinn.
- Eldið í ofni í um 25–30 mínútur á 180 gráðum.
- Berið fram með góðu salati og sýrðum rjóma til hliðar.