Kókos raspaðar kjúklingalundir á vöfflur
Kjúklingur á vöfflu skemmtileg hugmynd af mat sem kemur skemmtilega á óvart! Hentar bæði í kvöldmat og í brönsinn!
Innihald
- 500 gr kjúklingalundir
- 1 stk egg
- 1 dl mjólk
- 5 msk hveiti
- 160 gr kókosmjöl
- Salt og pipar
- 2 tsk Paprikuduft
- 2 tsk Kúmin duft
- 2 tsk Hvítlaukskrydd
- 4 msk kókosolía til steikingar
Aðferð
- Byrjið á að hræra saman egg og mjólk í skál, hveitið fer í aðra skál og í þriðju skálina fer
kókosmjölið ásamt kryddunum, hrærið kryddin vel saman við kókosmjölið. - Dýfið hverri kjúklingalund í hveiti, þaðan er henni dýft í mjólkurblönduna og að lokum í
kókosmjölsblönduna, passið að hjúpa kjúklingalundina vela f kókosmjöli. - Steikið hverja lund upp úr kókosolíu á vel heitri pönnu þangað til að þær eru gullinbrúnar.
- Setjið í eldfast form og inn í ofn í um 25 – 30 mínútur við 200 gráður.