Browgame Brow Styling augabrúnasápa
Þú hefur kannski heyrt um litla leyndarmál Hollywood-stjarnanna til að fá fullkomnar augabrúnir en Brow Styling Soap frá Browgame sækir innblástur til þess. Augabrúnasápan mótar augabrúnirnar fullkomlega og heldur löguninni. Hvort sem þú ert með gisnar brúnir sem þurfa hjálparhönd, vilt vera með umfangsmeiri brúnir eða langar einfaldlega hafa brúnirnar snyrtilegar þá hjálpar augabrúnasápan þér að móta þær hvernig sem þú vilt.
Þú færð:
-Öskju úr áli (20 gr.) sem má endurnota eða endurvinna.
-Augabrúnavöru sem býr yfir öflugu haldi og förðunarfræðingar hafa dálæti á.
-Rakagefandi innihaldsefni sem næra viðkvæma húðina.
-Meðfærilegar umbúðir sem passa fullkomlega í töskuna.
- Vegan og Cruelty Free
Notkunarleiðbeiningar:
Settu nokkra dropa af vatni á sápuna en gættu þess að bleyta hana ekki um of. Nuddaðu meðfylgjandi bursta upp úr sápunni þar til myndast hefur kremkennd áferð og greiddu sápublönduna í gegnum augabrúnirnar. Leyfðu mínútu að líða og greiddu svo aftur í gegnum augabrúnirnar til að móta þær. Nú geturðu sótt símann þinn og tekið sjálfsmynd því augabrúnirnar hafa sjaldan litið svona vel út.